Get all 8 Ari releases available on Bandcamp and save 35%.
Includes unlimited streaming via the free Bandcamp app, plus high-quality downloads of Kensho, Quicksand (in the dark), Careless Word, EP, Lock n' load, Anthem, Radikoj, and Fræ.
1. |
Spor
03:57
|
|||
Hvert þarf ég að fara
Til þess að enda einhversstaðar
Mér er sama hvar ég enda
Svo lengi sem þú verður þar
Hver felur þessi spor
Farðu vetur og komdu vor
Og taktu með þér öll þessi spor
Allar leiðir ættu að liggja til þín
Ef við felum þessi spor
Fórum við kanski aldrei af leið
Ef ég sný heiminum við
liggur leiðin beina leið heim
Hver felur þessi spor
|
||||
2. |
Nýju vondu næturnar
03:40
|
|||
Það er þyngra en tárum tekur að vera vampíra með falskar tennur
Ég vígði vatn, skálaði við þig og við dönsum á víni meðan borgin brennur
Þú hvíslaðir í eyra mitt að þú værir í rauninni bara lítill myrkfælinn draugur
Með latt auga og beyglað loftnet sem fólk héldi að væri geislabaugur
Nýju vondu næturnar
Eftir þessar nýju vondu nætur er svo auðvelt að vakna andvana
Í röngum bæ, í röngu rúmi og í vitlausum röngum líkama
Þú sagðir uppvakninga þurfa að þola fordóma, þú værir vegan með drómasýki
Og þig dreymdi rennblauta drauma um velferðar fólk úr leðurlíki
Nýju vondu næturnar
|
||||
3. |
Fræ
03:38
|
|||
Hún sagði farðu..... burt
Ég sagði láttu..... kjurt
Svo hún snerti mig laust og ég stoppaði stutt
Hún sagði gefðu....allt
Ég sagði komdu.....strax
Henni er alltaf ísheitt en mér eldkalt
Þú ert dýrkuð og dáð
En hvaða fræum hafið þér sáð?
Hún beit mig í nefið og sagði hægt
Þú ert illskan holdi klædd
Hún virkaði meira vonsvikin en hrædd
Hún sagði þú getur....sest
Og ég skal gera..... rest
Flest fólk er ekki eins og fólk er flest
Þú ert dýrkuð og dáð
En hvaða fræum hafið þér sáð?
|
||||
4. |
Auga uppþotsins
03:38
|
|||
VIð byggðum loftkastala
Í skýjagötu eitt
Væntingar annarra
Gerðu okkur það kleift
Við sögðum dauði
Eða heimsyfirráð
En við hefðum líklega betur
verið allsgáð
Í auga uppþotsins
Þó þú fáir hjálp að ofan
Þá er fallið alltaf jafn hátt
En ef þú ætlar að spenna bogann
Skal það gert í gagnstæða átt
Helsta dánarorsök er
Mannorðssjálfsmorð
Lífið er stutt í þessari
Skýjasmáborg
Við sögðum dauði
Eða heimsyfirráð
En við hefðum líklega betur
verið allsgáð
|
||||
5. |
Á eldi
04:03
|
|||
Ég er dropi í þitt haf og þú ert að keyra mig í kaf
Segðu mér höfum við verið hérna áður
Ef veggirnir gætu talað myndu þeir samt þegja
Segðu mér höfum við verið hérna áður
Þú sagðist vera sendiboði fyrir satan og allt þetta hatur gerði hann latann
En segðu mér höfum við verið hérna áður
Ég barði hausnum í vegginn og kom út hinu megin
Segðu mér höfum við verið hérna áður
Saman getum við elt skugga þar til eldurinn slokknar
Á meðan ég drukkna í demantsá tyggurðu plast og horfir á
Segðu mér höfum við verið hérna áður
Það að vera eins og þið hefur aldrei verið mín sterka hlið
Segðu mér höfum við verið hérna áður
Taktu hnefann úr andlitinu á mér og sendu mér frekar harðort bréf
Og segðu mér höfum við verið hérna áður
Það er betra að vera vitur eftirá en vera heimskur með eftirsjá
Segðu mér höfum við verið hérna áður
Ég er á eldi
|
||||
6. |
Partar
03:59
|
|||
Við erum partar
Sem engin setti saman
Hví er ég er ekki summa parta minna
Ég er beinagrind
Settur saman úr brotnum beinum
Hví er ég ekki summa parta minna
Mér er skítsama hvað aðrir eiga í þér
Partur af þér verður alltaf partur af mér
Ég dett í sundur
Ef þú ferð illa með mig
Hví er ég er ekki summa parta minna
Settu mig saman
Úr lánuðum minningum
Hví er ég er ekki summa parta minna
|
||||
7. |
Anarkistinn
04:00
|
|||
Ég veit ég mun aldrei fá þig og það er óþolandi
En sannleikurinn er og verður algjört kjaftæði
Við vorum í teygjustökki í kjallara
Við töpuðum orustunni en unnum bardagann
Við sungum amen og hallalúja og misstum trúnna
Ég bjó til konungsríki úr svartri lygi
En lífið var útkrassað blað ekki auður strigi
Hversu lengi geturðu hlustað á mig kvarta
Ef að eilífu er búið getum við reynt við alltaf
Hver ætlar að pumpa blóði í þetta hjarta
|
||||
8. |
Himinn og haf
03:15
|
|||
Það er betra að synda í neonljósi
En drukkna í tunglskini
Stundum gefur lífið þér rósir
Stundum færðu illgresi
Við áttum okkar stundir
Lífið var sumarkvöld
Við áttum ekkert og lögðum allt undir
Og nóttin varð of köld
Hví er ég aftur þar
Sem ég hef aldrei verið áður
Þetta er ekkert sem mig langar
Ég fer samt alltaf hratt, hratt, hratt þangað
Þú sagðir þetta er bara smá halli
Og bráðlega myndum við rétta okkur af
En elskan mín við erum í frjálsi falli
á milli okkar er bæði Himinn og haf
Við dönsuðum við rispaða plötu
Á móti umferði í einstefnugötu
|
||||
9. |
Allur hávaði heimsins
03:42
|
|||
Stundum gæti ég sigrað heiminn
En oftast hefur hann vinninginn
Ég hef aldrei beðið um meira en allt
Svarið í vindinum fauk langt út í buskann
Segðu eitthvað, hvað sem er, öskraðu í eyrað á mér
Þú ert vél, ég er draugurinn í þér
Fæddist í fullum herklæðum en enda alsber
Þó mig dreymi um hana, hugsa ég bara um þig
Og vakna alltaf alsæll þér við hlið
Segðu eitthvað, hvað sem er, öskraðu í eyrað á mér
Allur hávaði heimsins
(það glymur í hausnum allur hávaði heimsins og ég er að öskra á ró)
Er ekki jafn ærandi og þessi þögn
Hausinn á mér er mun bráðum springa
Ef feita konan hættir ekki að syngja
Augnablikið er þitt en heimurinn er minn
Ef þú hleypir mér að skal ég hleypa þér inn
|
||||
10. |
Endakall
04:27
|
|||
Endirinn tekur enda
Endirinn tekur enda að lokum
Við erum bara rétt að byrja
Það rennur ekki allt vatn til sjávar
Mold er hold og hold er mold
|
Ari Iceland
Icelandic music making mammal about to release my third album called Kensho...
Streaming and Download help
If you like Ari, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp